• Myndir Ársins
  • Um okkur
  • Skilaleiðbeiningar
BLÍ
  • Myndir Ársins
  • Um okkur
  • Skilaleiðbeiningar

 

Loftslagsverkfall

Loftslagsverkfall

Ljósmyndari / Sigtryggur Ari

Skólafólk hefur mótmælt aðgerðarleysi í loftslagsmálum í hádeginu á föstudögum í meira en ár. Mótmælin eru að fyrirmynd baráttukonunnar ungu, Gretu Thunberg.

Umsögn dómnefndar: Myndin fangar það málefni sem hefur einna helst verið í umræðunni á Íslandi og heiminum öllum. Skilaboðin koma skýrt fram í myndinni og sýna að ungt fólk lítur til framtíðar.

Mordor

Mordor

Ljósmyndari / Vilhelm Gunnarsson

Barist við eld hjá Sorpu í Álfsnesi

Leit í Ölfusá

Leit í Ölfusá

Ljósmyndari / Eyþór Árnason

Björgunarsveitarmaður leitar að Páli Mar Guðjónssyni sem féll í Ölfusá. Páll hefur ekki enn fundist.

Sómakennd

Sómakennd

Ljósmyndari / Anton Brink

Baldvin Þorsteinsson sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, lét Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, heyra það að loknum opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á Alþing. Már kom fyrir nefndina þar sem Samherjamálið svokallaða og vinnubrögð Seðlabankans í málinu voru til umfjöllunar. Að loknum fundinum, frammi á gangi á nefndasviði Alþingis, beindi Baldvin orðum sínum að Má þegar seðlabankastjóri ætlaði að fara að ræða við Þorstein Má.„Hafðu smá sómakennd og drullaðu þér í burtu,“ sagði Baldvin við Má að loknum fundinum. Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, þurfti að ganga á milli manna og sagði að svona ætti fólk ekki að haga sér á göngum Alþingis.

Flóttamenn

Flóttamenn

Ljósmyndari / Vilhelm Gunnarsson

Hælisleitendur mótmæla aðbúnaði og brotvikningum á Austurvelli

Bílakjallarabruni

Bílakjallarabruni

Ljósmyndari / Ernir Eyjólfsson

Unnið að þrifum og lagfæringum eftir bruna á bílakjallara að Sléttuvegi 7 í Fossvogi.

Klausturþingmenn

Klausturþingmenn

Ljósmyndari / Anton Brink

Alþingi var enn að vinna úr málum sem lúta að tali þingmanna á Klaustri bar í lok nóvember þegar Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson birtust skyndilega aftur við þingstörf í morgun. Mennta- og menningarmálaráðherra sýndi það svo ekki varð um villst að hún var ekki par ánægð með Gunnar Braga þegar hann sat í þingsal við upphaf þingfundar. Eftir stutt eintal hennar yfir Gunnari Braga gekk hún úr salnum.

Sigríður Á Andersen Dómsmálaráðherra segir af sér

Sigríður Á Andersen Dómsmálaráðherra segir af sér

Ljósmyndari / Kristinn Magnússon

Sigríður Á. Andersen segir af sér embætti dómsmálaráðherra. Þetta tilkynnti hún á blaðamannafundi. Hún segist ætla að„stíga til hliðar“ meðan unnið verði úr þeirri stöðu sem komin er upp vegna dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu.

Seðlabankastjóra skipti

Seðlabankastjóra skipti

Ljósmyndari / Eyþór Árnason

Ásgeir Jónsson ræðir við fjölmiðla á fyrsta degi hans í starfi seðlabankastjóra Íslands.

Flugslys

Flugslys

Ljósmyndari / Hari - Haraldur Jónasson

Flugslys á Skálafelli. Flugvél brotlenti á toppi Skálarfells. Rannsakendur reyna, með leikrænum hætti, að átta sig á hvað gerðist.

Á ég fara inn ...

Á ég fara inn ...

Ljósmyndari / Vilhelm Gunnarsson

Ragna Árnadóttir, nýr skrifstofustjóri Alþingis, við setningu Alþingis í haust.

Seðla­bankinn sýnir hin um­­­deildu verk Blön­dals

Seðla­bankinn sýnir hin um­­­deildu verk Blön­dals

Ljósmyndari / Eyþór Árnason

Ákveðið var að fjarlægja alfarið nektar­málverk eftir Gunnlaug Blöndal af veggjum Seðlabanka Íslands. Verkin hafa verið sett í geymslu um ókomna tíð eftir að gerð var athugasemd við hina ósæmilegu nekt. Seðlabankinn sýndi þó verkin á opnu húsi þar sem þesi eldri maður virti fyrir fyrir þessa óforskömmuðu nekt!

Katrín og Pence segja stopp

Katrín og Pence segja stopp

Ljósmyndari / Hari - Haraldur Jónasson

Katrín Jakobsdóttir forsetisráðherra Íslands og Pence varaforseti Bandaríkjanna þagga niður í forvittnum blaðamönnum og slaufa blaðamannafundi sem haldinn var á Keflavíkurflugvelli.

Mótmælandi með páfagauk

Mótmælandi með páfagauk

Ljósmyndari / Eggert Jóhannesson

Mótmælir komu Mike Pence varaforseta Bandaríkjana til landsins

Grindhvalur

Grindhvalur

Ljósmyndari / Stefán Karlsson

Hvalur við Eiðisgranda, Seltjarnarnesi. Björgunarsveitin Ársæll við hvalabjörgun.

Bjargað úr brennandi húsi

Bjargað úr brennandi húsi

Ljósmyndari / Vilhelm Gunnarsson

Ungri konu bjargað úr brennandi húsi í Vesturbergi í Breiðholti

Þögul mótmæli

Þögul mótmæli

Ljósmyndari / Heiða Helgadóttir

Þögul mótmæli gegn niðurfellingu nauðgunarmála. Fyrir utan héraðssaksóknara

Matmálstími

Matmálstími

Ljósmyndari / Sigtryggur Ari

Hár kostnaður við mat á borgarstjórnarfundum olli fjaðrafoki í desember. Borgarfulltrúar snæða hér meðal annars andalæra-confit.